Nýjungar í Dokobit Portal og Appinu

Júní, 2024

Síðan fyrir notkunartölfræði hefur fengið endurbætt útlit!

Nú er enn auðveldara fyrir stjórnendur að fylgjast með mikilvægri notkunartölfræði.
Ný hönnun tölfræðisíðunnar miðast við að auðvelda leit að lykilupplýsingum.

Nú eru fleiri reitir til að velja dagsetningar og notendur á auðveldan hátt – ásamt sundurliðun
á undirskriftum með rafrænu skilríkjum og auðkenningum eftir öryggisstigum. Þessar endurbætur gefa skýrari sýn á yfirvofandi reikningum án þess að þörf sé á því að flytja út Excel-skjöl.

Það er sífellt algengara að fyrirtæki nota rafræn innsigli og þar af leiðandi fylgir sjálfvirk talning rafrænna innsigla með – þannig það er auðvelt að rekja notkun teymisins. Ert þú ekki með rafrænt innsigli? Skoðaðu hvernig önnur fyrirtæki nota rafræn innsigli og pantaðu þitt eigið hér.


Apríl, 2024

Nú getur þú hlaðið upp mörgum PDF skjölum samtímis

Ef þú ert vanur að hlaða upp eða undirrita mörg skjöl í einu mun þessi virkni breyta því hvernig þú nálgast skjala meðhöndlun!

Hingað til, ef þú varst að vinna með með margar skrár, þurftir þú að hlaða þeim upp eina í einu sem þýddi endurtekin verkferli fyrir sendanda skjalsins og fjölda tölvupóstboða fyrir undirritanda. Ekki lengur!

uploading multiple documents

Nú getur þú hlaðið upp mörgum PDF skjölum í einu skrefi, valið þínar stillingar, bætt við þátttakendum og deilt skjölunum. Á meðan mun viðtakandinn ekki fá truflanir í formi tölvupósta, í staðinn mun hann fá eitt boð og skrifa undir skjölin í einföldu ferli.

Undirritunarferlið mun krefjast þess að öll skjöl séu skoðuð fyrst og síðan undirrituð eitt í einu, án þess að endurtaka yfirferðina eða opnunarskref skjala. Með öðrum orðum, þegar þeir hafa undirritað skjal mun kerfið sjálfkrafa hlaða undirritunarglugga fyrir það næsta. Það verður að undirrita öll skjöl í þeirri lotu til að ljúka ferlinu og sjá stöðuna „Undirritaður“.

Hvað ef ég er ekki ánægður með eitt af skjölunum?

Þú verður að fara yfir öll skjölin fyrst. Ef þú ert ekki ánægður með eitt þeirra skaltu ekki að hefja undirritunarferlið. Þú neitar í staðinn að skrifa undir og lætur eiganda skjalsins vita hverju þarf að breyta. Þú ættir aðeins að byrja að undirrita ef þú ert ánægður með öll skjölin í lotunni.

Hver getur notað þennan eiginleika?

Þessi eiginleiki er hluti af gjaldskyldum áætlunum sem þýðir að allir með Fagfólk, Fyrirtæki eða Stærri fyrirtæki reikninga geta notað hann. Þetta er góð viðbót við eiginleikana sem fást með áætlunum: undirritaðu með samstarfsaðilum frá öðrum löndum, leyfðu notendum að undirrita án Dokobit reiknings, notaðu fresti, áminningar og fleira! Smelltu hér til að sjá ítarlegan samanburð á áætlunum.

Hver er munurinn á þessu og lotuundirritun?

Þessi eiginleiki er í boði fyrir alla notendur í áskrift og virkar með öllum undirskriftaraðferðum sem þú notar venjulega. Lotuundirritun er aftur á móti sérstakt ferli sem virkar aðeins með sumum snjallkortum, auðkenniskortum og USB-táknum. Ef þú hefur ekki heyrt um slíkar aðferðir til að undirrita, eru líkur á því að það sé miklu einfaldara fyrir þig að nota venjulega undirritunaraðferð. Ertu ekki viss um hvaða aðferðir á eru studdar á þínum markaði? Smelltu hér til að komast að því.


Nóvember, 2023

Við fjarlægjum landamæri við undirritun með Dokobit appinu

Dokobit appið hefur fengið umtalsverðar uppfærslur, sem skilar sér í hraðari og þægilegri undirritun. Þetta er það sem þú finnur í uppfærðu útgáfunni:

  • Bætt notendaviðmót fyrir skjalaskoðun – forskoðaðu skjalið og hafðu allar upplýsingar um þátttakendur á þægilegan hátt settar upp á eigin flipa
  • Sýnileiki verkferli – þegar þú ert með ákveðið verkferli getur þú fylgst með framvindunni án þess að skrá þig inn á Dokobit Portal
  • Undirritun með SMS OTP* er ný undirskriftaraðferð, sem áður var aðeins aðgengileg í Dokobit Portal. Njóttu notendavænnar undirritunarupplifunar fyrir skjöl með minni ábyrgðaráhættu
  • Dokobit appið styður nú öll EES lönd!

Hefurðu ekki prófað Dokobit appið ennþá? Þú ert að missa af frábærum eiginleikum eins og skönnun og undirritun skjala, rauntímatilkynningar um stöðu skjala og margt fleira! Skannaðu QR kóðan til að hlaða því niður eða finndu það í Apple App Store eða Google Play Store.

Scan to Download

*Þessi undirritunaraðferð er sem stendur ekki studd í Litháen, Lettlandi, Eistlandi og Íslandi.


Júlí, 2023

Notaðu lífkenni til að skrá þig inn í gáttina!

Innskráning á Dokobit gáttina hefur aldrei verið jafn einföld! Notendur Dokobit appsins geta nú notað lífkenni til að ljúka innskráningu sinni á skjáborðið fljótt og örugglega.

Aðferðin virkar svipað og aðrar auðkenningaraðferðir – en nú er hins vegar ekki krafist PIN-númers.

Log in with biometrics


Áður en þú byrjar skaltu ganga úr skugga um að þú hafir Dokobit appið á símanum þínum og að síminn þinn styður lífauðkenni (t.d. FaceID eða fingrafar).

  1. Skráðu þig inn á Dokobit gáttina.
  2. Veldu Biometrics (lífauðkenni) sem verification method (sannprófunaraðferð).
  3. Sláðu inn netfangið þitt.
  4. Þú munt sjá 4 stafa kóða á innskráningarskjánum þínum.
  5. Síminn þinn verður beðinn um að sýna þér sama kóða.
  6. Þegar þú hefur athugað kóðann er óhætt að nota lífkenni aðferðina sem þú valdir – FaceID eða fingrafar.
  7. Þegar síminn þinn hefur staðfest auðkenninguna skráir hann þig inn í gáttina á skjáborðinu á meðan appið lokar sjálfkrafa.

Þetta tekur aðeins nokkrar sekúndur!

En bíddu, er þetta öruggt?

Lífkenni er öflug tækni sem lágmarkar áhættu frá gagnalekum og tölvuþrjótum. Það kemur einnig í veg fyrir að notendur þurfi að leggja lykilorð eða PIN-númer á minnið með því að nota lífkenni. Fyrir vikið veitir lífkenni öruggari og þægilegri aðferð til að skrá þig inn á Dokobit reikninginn þinn.

Ef þú hefur ekki notað Dokobit appið ennþá, þá eru fleiri ástæður til að prófa: undirritaðu skjöl á ferðinni, fáðu rauntímauppfærslur og tilkynningar, skannaðu skjöl og margt fleira.

Skannaðu til að hlaða niður appinu núna:

Scan to Download

Mar, 2023

Dokobit yfir allt evrópska efnahagssvæðið

Við erum að fagna stórum tímamótum – þjónusta Dokobit nær nú yfir allt Evrópska efnahagssvæðið (EES) með öruggum og fullgildum undirritunaraðferðum!

Dokobit covers the entire EEA

Ríkisborgarar frá EES-löndum geta nú skráð sig á Dokobit með því að nota tölvupóst og fá einnota lykilorð (OTP). Á sama tíma munu ríkisborgarar frá löndum sem þegar njóta stuðnings halda áfram að nota núverandi rafræn skilríki.

Eftir skráningu munu notendur frá nýstuddum löndum geta undirritað skjöl með því að nota myndbands auðkenningar með ElectronicID og Swisscom. Þetta er einfalt og fljótlegt ferli sem krefst einungis þess sem flestir hafa þegar við höndina: snjallsíma, persónuskilríki og tölvu með nettengingu. Þetta ferli gefur út fullgilt vottorð fyrir rafræna undirskrift og notendur geta haldið áfram að nota þetta viðurkennda rafræna skilríki í 2-5 ár án þess að endurtaka ferlið.

Til að sjá lista yfir studd rafræn skilríki eftir löndum, smelltu hér.


Jan, 2023

Forðastu endurtekningar með eyðublöðum

Uppfært: Allir notendur í áskrift geta notað eyðublöðin – sama hvaða þjónustuleið þeir eru í. Lestu meira.

Eyðublöð eru frábær leið til að einfalda daglegan rekstur. Eigendur og stjórnendur Fyrirtækja eða Stærri félög reikninga geta búið til sniðmát fyrir eyðublöð og deilt tengli með öðrum aðilum til að undirrita þau í nokkrum einföldum skrefum:

  • Þú hleður upp pdf skjali;
  • Færir inn nauðsynlega tóma reiti í skjalið (þú getur bætt við textareit, gátreit, valhnapp eða valkosti);
  • Deildu skjalinu innan fyrirtækisins eða með öðrum aðilum með því að deila hlekknum að því.
  • Tilbúið til undirritunar!

Eigendur og stjórnendur Fyrirtækja eða Stærri félög reikninga geta vistað eyðublöð og deilt þeim innan reikninga sinna til að vera síðar stjórnað af teyminu sínu. Þannig myndast gríðarlegur tímasparnaður og þú getur einbeitt þér að brýnari verkefnum.

Samnýtt eyðublað er hægt að fylla út og undirrita oftar en einu sinni. Í hvert sinn sem skjal er undirritað er það vistað í Dokobit reikningnum þínum.

Ef eyðublað er ekki tilbúið til birtingar er hægt að vista það sem drög og klára síðar.


Jan, 2023

Dokobit portal styður Swisscom og iDIN

Dokobit portal styður nú tvær nýjar lausnir sem gerir fleiri notendum kleift að safna undirskriftum frá viðskiptavinum, samstarfsaðilum og fyrirtækjum á alþjóðavettvangi.

Swisscom gerir notendum í Þýskalandi og Austurríki auðvelt að undirrita skjöl, en skapar jafnframt möguleika fyrir nýja viðskiptavini á svæðinu ásamt Ítalíu (fleiri lönd á leiðinni) að skrá sig og undirrita með auðkenningarmyndbandi. Ferlið er einfalt og fljótlegt – það þarf aðeins snjallsíma, skjal til undirritunar og nettengingu. Eftir skráningu getur notandinn haldið áfram að nota rafrænar undirskriftir í 2-5 ár án þess að endurtaka ferlið.

Að auki býður Dokobit upp á þægilega og örugga leið fyrir notendur í Hollandi til að skrifa undir skjöl með iDIN stafrænu auðkennisþjónustunni, sem hollenskir bankar veita. Notendur geta undirritað skjöl innan Dokobit portal með því að nota annað hvort lausn Swisscom (fullgildar rafrænar undirskriftir) eða iDIN (útfærðar rafrænar undirskriftir).

Að lokum geta notendur frá Þýskalandi, Austurríki og Hollandi auðveldlega búið til Dokobit reikninga með því að staðfesta netfangið sitt eða símanúmer með lykilorði (OTP). Þetta gerir ríkisborgurum þessara landa kleift að búa til, undirrita og safna lagalega bindandi undirskriftum.


Okt, 2022

Skönnun skjala

Dokobit appið styður nú skönnun skjala! Skannaðu skjölin þín, skrifaðu undir og deildu þeim með öðrum í nokkrum einföldum skrefum.

Hægt er að skanna hvaða skjal sem er og umbreyta því í PDF viðmót. Þú getur svo undirritað skjalið, deilt því með öðrum til samþykkis og undirritunar eða veitt þriðja aðila aðgang.

Jafnvel þó að aðili sendi þér skjöl í pappírsformi, getur þú sparað þér tíma og varðveitt þau inni í Dokobit Portal.

Prófaðu:

  1. Í Dokobit appinu smelliru á „+“ neðst á skjánum eða smellir á Upload new í Quick actions valmyndinni.
  2. Fullvissaðu svo að viðmót skjalsins sé stillt á PDF og veldu Scan.
  3. Staðsettu skjalið fyrir miðjum skjánum, þannig að öll horn eru sýnileg. Appið mun skanna sjálfkrafa um leið og það greinir skjalið á skjánum. Ef þú vilt frekar skanna handvirkt getur þú smellt á „Auto“ uppi í hægra horninu. Ábending: Þú getur skannað margar blaðsíður í einu, sem gerir þér kleift að sameina blaðsíðurnar í eitt PDF skjal.
  4. Þegar þú hefur lokið því að skanna allar nauðsynlegar blaðsíður smelliru á Save.
  5. Veldu nafn fyrir skjalið. Þú getur svo sett skjalið í flokk sem þú hefur þegar útbúið í Portal, ákveðið hvar athugasemdir eiga að birtast, hvort fullgildar undirskriftir séu nauðsynlegar eða sett tímafrest fyrir undirritun.
  6. Í næsta skrefi velur þú þátttakendur og smellir svo á Create.
  7. Fleira var það ekki, skjalið er tilbúið til undirritunar!

Hefur þú prófað Dokobit appið? Náðu í það hér.


Okt, 2022

Vörumerkjastjórnun

Dokobit notendur geta sérsniðið rafræna undirskriftarferlið fyrir samstarfsaðila sína og notað sín eigin vörumerki, lógó og einkennisliti.

Uppgötvaðu auðvelda leið til að skapa djúpstæð tengsl við viðskiptavini og byggðu traust í hvert skipti sem þeir undirrita skjöl. Sérsniðin útlit sem endurspegla vörumerkið þitt fullvissar viðskiptavini og samstarfsaðila að skjölin sem þú sendir eru lögmæt og komin frá þínu fyrirtæki.

Þessi eiginleiki hefur nú verið uppfærður til að gera ferlið þægilegra fyrir notendur með Fyrirtæki og Stærri félög áskriftir. Þú velur „Sérmerkt útlit fyrirtækis“ undir „Gögn fyrirtækisins“ í Portal, bætir við fyrirtækjalógó, velur einkennisliti og Dokobit sér um restina.

Dokobit fyrir teymi
Ertu að leita að rafrænni undirskriftalausn fyrir teymið þitt? Auðvelt undirskriftarferli, snyrtilega flokkuð skjöl og einfalt eignarhald á gögnum eru eiginleikar sem teymið þitt, viðskiptavinir og samstarfsaðilar kunna að meta. Kynntu þér málið hér: Dokobit fyrir teymi.